TILKYNNA ÓÆSKILEGA HEGÐUN

UMF Stjarnan leggur mikla áherslu á að allir iðkendur innan félagsins geti stundað íþróttina sína í öruggu umhverfi. Hér að neðan má finna upplýsingar um fræðslu og hvert er hægt að leita ef að grunur er um að öryggi iðkenda sé ógnað. 

Ef þú telur þig verða vitni af hegðun eða samskiptum sem þú telur ógna öryggi einstaklings innan félagsins eða grunur leikur á að óæskileg hegðun eigi sér stað hvort sem hún sé í formi eineltis, samskiptavanda eða einhverskonar ofbeldis, er það skýr stefna Stjörnunnarað tekið sé á málinu strax.  

Grun um óeðlilega hegðun ber að tilkynna með formlegum hætti á eyðublaði sem má finna HÉR. Nauðsynlegt er að vitneskja um slíka hegðun berist til þjálfara, yfirþjálfara og stjórnenda félagsins. Þjálfari og/eða sá starfsmaður sem fær vitneskju um óæskilega hegðun skal taka á málinu strax. Þjálfaribyrjar á að hafa samband við yfirþjálfara sem vinnur málið áfram með stjórnendum félagsins og skólaskrifstofu Garðabæjar. Þeir hafa samráð um viðbrögð og aðgerðir. 

  • SAMSTARF STJÖRNUNNAR OG GARÐABÆJAR

    UMF Stjarnan náið með skólaskrifstofu Garðabæjar varðandi eineltis og samskiptavandamál sem upp geta komið í starfi félagsins. Á síðu Garðabæjar má sjá nánari upplýsingar um farveg mála og eins fræðslu um verkferla sem Stjarnan fylgir í eftirfarandi málum. 

  • SAMSTARF STJÖRNUNNAR OG ÆSKULÝÐSVETTVANGSINS

    Einstaklingar sem telja sig hafa orðið fyrir óæskilegri hegðun (kynferðisbrot eða annarskonar ofbeldi) geta tilkynnt mál til fagráðs Æskulýðsvettvangsins. Öllum tilkynningum er tekið alvarlega og þeim komið í réttan farveg. 

    Í fagráðinu sitja alltaf tveir óháðir sérfræðingar sem hafa þekkingu, menntun og reynslu sem nýtist við meðferð kynferðisbrotamála og eineltismála. Í dag starfa lögfræðingur og sálfræðingur í fagráðinu. Framkvæmdastýra Æskulýðsvettvangsins er einnig starfsmaður fagráðsins. 

    Engin greiðsla er tekin fyrir þjónustu æskulýðsvettvangsins.

  • SAMSKIPTARÁÐGJAFI ÍÞRÓTTA- OG ÆSKULÝÐSSTARFS

    Allir eiga rétt á því að geta stundað sitt íþrótta- og/eða æskulýðsstarf í öruggu umhverfi. Einnig eiga allir iðkendur; börn, unglingar og fullorðnir óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti að geta leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem eiga sér stað án þess að þurfa að óttast afleiðingar. 

    Samskiptaráðgjafi er óháður aðili sem styður við, leiðbeinir og aðstoðar þá sem hafa upplifað einhverskonar ofbeldi eða einelti í slíku starfi. Sigurbjörg Sigurpálsdóttir er Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs. 

    Þeir sem telja sig hafa orðið fyrir ofbeldi eða einelti í sínu íþrótta- og æskulýðsstarfi eða eru ekki vissir og vilja fá ráðgjöf varðandi slík mál, geta haft samband við Sigurbjörgu með því að senda póst á sigurbjorg@dmg.is eða hringt í síma 839-9100

    Engin greiðsla er tekin fyrir þjónustu samskiptaráðgjafa. 

  • BARNAVERND - NETNÁMSKEIÐ ÆSKULÝÐSVETTVANGSINS

    Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsfélögum um land allt á einelti, ofbeldi og áreitni sem börn og ungmenni geta orðið fyrir og afleiðingunum af því. 

    Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð. 

    Netnámskeið Æskulýðsvettvangsins í barnavernd er öllum opið og ókeypis. 

Liquid error (sections/pagefly-section line 8): Could not find asset snippets/pf-3b8bd01a.liquid