HLAUPAHÓPUR STJÖRNUNNAR
Hlaupahópur Stjörnunnar er hluti af Almenningsíþróttadeild Stjörnunnar.
Skráning í hópinn fer fram á https://www.sportabler.com/shop/stjarnan/hlaupahopur Þegar búið er að greiða árgjald, býðst maka eða fjölskylduafsláttur.
Þá getur virkur meðlimur óskað eftir aðgangi á fb síðu hópsins; Virkar Stjörnur 2022-2023. Þar fara fram öll samskipti milli þjálfara hópsins og meðlima, sbr. æfinga dagskrá og áherslur milli tímabila yfir árið.
Önnur fb síða hópsins; Hlaupahópur Stjörnunnar er fyrir allar almennar upplýsingar úr hlaupasamfélaginu og hugsuð sem like síða.
Yfirþjálfari hópsins er Arnar Pétursson.
Öll getustig eiga heima í Hlaupahóp Stjörnunnar og unnið er með þrjá hópa eða hóp 1,2 og 3.
Hlaupaæfingar eru á boðstólum með þjálfara fjórum sinnum í viku auk þess eru sendar út fleiri æfingar og fræðsla um hlaup, styrktaræfingar og keppnir. Yfir vetrarmánuði eru inniæfingar á braut í FH-Höllinni einu sinni í viku ásamt einni styrktaræfingu í Miðgarði.
Til að stuðla að nýliðun er tekið sérstaklega vel á móti nýjum félögum að vori og aftur að hausti.
Mikið og gott félagsstarf er á dagskrá árlega og starfandi er Hlauparáð hópsins sem sér um rekstur og viðburði Hlaupahópsins. Þar ber hæst árlegt Stjörnuhlaup sem haldið er á vordögum.
Sjáumst á hlaupum!
Árgjaldið greiðist á https://www.sportabler.com/shop/stjarnan/hlaupahopur
Hlauparáð svarar fyrirspurnum á hlaupahopur@stjarnan.is
Upplýsingar um Stjörnuhlaupið eru á stjornuhlaup.is