• 1010

    FJÖLDI IÐKENDA

  • 679

    FJÖLDI DRENGJA

  • 331

    FJÖLDI STÚLKNA

BARNA- OG UNGLINGASTARF KNATTSPYRNUDEILDAR

BARNA- OG UNGLINGARÁÐ KNATTSPYRNUDEILDAR

Barna- og unglingastarf knattspyrnudeildar Stjörnunnar er eitt það fjölmennasta á landinu með rúmlega 1.000 iðkendur í 2. til 8. flokki drengja og stúlkna. Við erum afar stolt af starfinu og þjálfurunum okkar en um 90% þjálfara hafa lokið UEFA þjálfaragráðum, aðrir þjálfarar eru í því ferli að klára gráður.

Þjálfararnir eru afar reynslumiklir í bland við framtíðar þjálfara sem eru að taka sín fyrstu skref í þjálfun. Yfirþjálfari yngri flokka knattspyrnudeildar er Páll Árnason, UEFA-A. Aðstoðaryfirþjálfari er Andri Freyr Hafsteinsson, UEFA-A. Umsjónarmaður minni bolta (5.-8. flokkur) er Hjalti Kárason Djuurhus, UEFA-B.

Keppnis- og æfingaaðstaða deildarinnar er á Samsungvellinum og völlum í kringum hann, samtals tveir gervigrasvellir í fullri stærð og þrír gervigrasvellir í hálfri stærð sem og Miðgarður í Vetrarmýri sem nýtist afar vel.

Það er skýr metnaður og aðalmarkmið okkar að skapa faglega, jákvæða og uppbyggilega umgjörð fyrir iðkendur okkar til að þroskast, dafna og ná árangri – hver og einn á sínum eigin forsendum. Metnaðurinn liggur einnig í því að byggja upp sterka einstaklinga, sem læra að takast á við krefjandi verkefni, sigra og ósigra og styrkja þannig félagsfærni og gera þeim þannig betur kleift að takast á við aðrar áskoranir í lífinu.

Á vormánuðum höldum við glæsilegt TM-Mót Stjörnunnar þar sem um 3 – 4.000 iðkendur í 6., 7., og 8. flokki drengja og stúlkna mæta til leiks. Mótið er á sama tíma stærsta fjáröflun yngri flokkanna fyrir stóru sumarmótin ár hvert og endurspeglar umgjörð mótsins, sem er í höndum foreldra, frábært foreldrastarf í yngri flokkum deildarinnar.

Upplýsingar um skipan, hlutverk og verklagsreglur barna- og unglingaráða Stjörnunnar er að finna í handbók félagsins sem þú getur skoðað í linknum hér að neðan. Netfang Barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar er bogu.knattspyrna@stjarnan.is

Allar upplýsingar um starfsemi yngri flokka knattspyrnudeildar má finna í Foreldravísi yngri flokka knattspyrnudeildar

Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar skipa

Sævar Már Þórisson
Formaður Barna og unglingaráðs
saevarmar@gmail.com

Sigrún Antonsdóttir
Meðstjórnandi
sigrunan@alftanesskoli.is

Harpa Vífilsdóttir
Meðstjórnandi
harpavifils@gmail.com