Pepsídeild Grindavík-Stjarnan Mfl. ka kl:19:15 í kvöld

Ágæta Stjörnufólk,

Næsti leikur er í GRINDAVÍK í kvöld kl. 19.15.  Tvö jafntefli og SIGUR á Keflavík setja okkur í 4. sætið.  Grindvíkingar eru sýnd veiði en ekki gefin.  Stefnt er á sigur og að hækka sig á töflunni.  Lítil forföll og engin leikbönn að þessu sinni.    Tveir leikmenn Stjörnunnar voru í liði vikunnar í Morgunblaðinu – Alexander og Snorri Páll í sínum fyrst meistaraflokksleik.  Það er skottúr til GRINDAVÍKUR.

Hvetjum ykkur öll til að mæta.

Áfram STJARNAN.

 

Allir hópar hjá fimleikadeildinni æfa út maí.

Stjörnuhlaup Garðabæjar 23. maí 2012

Ungmennafélagið Stjarnan í samstarfi við Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar (ÍTG) stendur fyrir almenninshlaupi. Frekari upplýsingar á Stjörnuhlaup.

Skráning fer fram á hlaup.com

Gunnar Berg tekur við Stjörnunni

Gunnar Berg Viktorsson verður næsti þjálfari 1. deildarliðs Stjörnunnar í handknattleik og gengur væntanlega frá samningum við Garðabæjarfélagið síðar í dag, að því er hann sagði við mbl.is.

Gunnar, sem er fyrrum landsliðsmaður og lék lengi erlendis, var aðstoðarþjálfari Hauka í vetur.

Hann kvaðst ekki vera kominn svo langt að vera farinn að skoða leikmannamálin af alvöru. „Ég hitti Stjörnumenn í kvöld og þá förum  við betur yfir þetta. Það er mikill efniviður í Garðabænum og það verður að stærstum hluta byggt á þeim strákum sem þar eru til staðar, þó kannski verði fengnir nýir menn í eina eða tvær stöður” sagði Gunnar.

Continue reading

Vorsýning fimleikadeildar Stjörnunnar

Vorsýning fimleikadeildarinnar verður haldin þriðjudaginn 15. og miðvikudaginn 16. maí kl: 18:00 -19:15

Þar munu iðkendur fimleikadeildarinnar sýna afrakstur vetrarins.  Allir velkomnir.

Æfingar falla niður á fimmtudag 17. maí uppstigningadag  hjá fimleikadeildinni.

Halldór tryggði Stjörnumönnum fyrsta sigurinn

Halldór Orri Björnsson tryggði Stjörnumönnum fyrsta sigur liðsins í Pepsi-deildinni í ár þegar Garðbæingar sóttu Keflvíkinga heim. Halldór skoraði sigurmarkið, 1:0, úr vítaspyrnu snemma leiks sem var dæmd á Ómar Jóhannsson markvörð Keflavíkur. Stjörnumenn hafa þar með 5 stig eftir þrjá leiki en Keflvíkingar, sem töpuðu sínum fyrsta leik, eru með 4 stig.
Mesta lífið var í Kennie Chopart hjá Stjörnunni. Kom sér í fín færi og fiskaði vítið mikilvæga. Ingvar flottur á milli stanganna og Halldór Orri klókur. Frammistaða Mads Laudrup olli vonbrigðum. Í engum takti við leikinn og spyrnur hans í leiknum voru þess utan arfaslakar. Continue reading

PEPSI-deild Karla 2012

Knattspyrna

Keflavík- Stjarnan kl:19:15 í Keflavík í kvöld

Stjörnuhlaup – 23. maí (Breytt dagsetning)

Stjörnuhlaup 23 mai 2012

Ótrúlegur lokakafli í Garðabæ

Stjarnan og Fylkir gerðu 2:2 jafntefli í 2. umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu í Garðabænum í kvöld. Leikurinn var nokkuð rólegur fram á 80. mínútu en þá tók við rosalegur lokakafli.

Gunnar Örn Jónsson kom Stjörnunni yfir á 29. mínútu í ágætum fyrri hálfleik en seinni hálfleikur var ansi dapur þar til á 80. mínútu. Þá fékk Daníel Laxdal rautt spjald fyrir brot á Jóhanni Þórhallssyni innan vítateigs. Ingimundur Níels Óskarsson skoraði úr vítinu og Jóhann bætti við öðru marki skömmu síðar.

Halldór Orri Björnsson náði hins vegar að jafna metin úr víti sem Atli Jóhannsson nældi í í uppbótartíma. Látunum var ekki lokið því varamaðurinn Bjarki Páll Eysteinsson fékk einnig rauða spjaldið í blálokin. Þá var markvarðaþjálfara Stjörnunnar, Henryk Bödker, vísað af varamannabekknum og upp í stúku í stöðunni 2:1.

Bæði lið eru því með tvö stig eftir tvo leiki.

Stjarnan: Ingvar Jónsson -Baldvin Sturluson, Alexander Scholz, Daníel Laxdal, Jóhann Laxdal – Atli Jóhannsson, Halldór Orri Björnsson, Mads Laudrup – Gunnar Örn Jónsson, Garðar Jóhannsson, Kennie Chopart.
Varamenn: Tryggvi Sveinn Bjarnason, Hilmar Þór Hilmarsson, Bjarki Páll Eysteinsson, Sindri Már Sigurþórsson, Snorri Páll Blöndal, Darri Steinn Konráðsson, Arnar Darri Pétursson.

Fylkir: Bjarni Þórður Halldórsson – Andri Þór Jónsson, David Elebert, Ásgeir Eyþórsson, Kjartan Ágúst Breiðdal – Ingimundur Níels Óskarsson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Davíð Þór Ásbjörnsson, Tómas Þorsteinsson – Magnús Þórir Matthíasson, Jóhann Þórhallsson.
Varamenn: Finnur Ólafsson, Árni Freyr Guðnason, Oddur Ingi Guðmundsson, Rúrik Andri Þorfinnsson, Elís Rafn Björnsson, Styrmir Erlendsson, Kristján Finnbogason.

Tekið af mbl.is

Stjarnan vann meistarakeppni KSÍ í fyrsta sinn

Kvennalið Stjörnunnar vann Val í Meistarakeppni KSÍ í kvöld, 3:1, en þetta er í fyrsta skipti sem Stjarnan vinnur þennan titil. Leikið var á heimavelli Íslandsmeistara Stjörnunnar og var þetta um leið vígsla á glænýju gervigrasi liðsins. Markamaskínan Ashley Bares kom Stjörnunni yfir, 1:0, rétt áður en fyrri hálfleik lauk en Bares var markadrottning efstu deildar í fyrra með 21 mark. Dagný Brynjarsdóttir jafnaði metin fyrir Val, 1:1, á 53. mínútu en Íslandsmeistararnir svöruðu með tveimur mörkum. Fyrst skoraði Inga Birna Friðjónsdóttir á 73. mínútu og svo kom Ásgerður Stefanía Baldursdóttir Stjörnunni í 3:1 með marki úr vítaspyrnu á 80. mínútu. Valur fékk tækifæri til að minnka muninn þremur mínútum fyrir leikslok þegar dæmt var víti á Stjörnuna en Dagný Brynjarsdóttir klikkaði á vítapunktinum. Lokatölur, 3:1. Bikarmeistarar Vals höfðu fyrir leikinn í kvöld unnið Meistarakeppnina fimm ár í röð en nú færir titillinn sig af Hlíðarenda yfir í Ásgarð.